Segulómun

Tært fljótandi fæði (sjá lista).

Tært fljótandi fæði (sjá lista).

Segulómun (MRI) notar sterkt segulsvið til myndatöku og er  hættulaus ef öryggisráðstöfunum er fylgt. Þess vegna er mikilvægt að þú lesir leiðbeiningarnar vandlega og greinir satt og rétt frá öllum atriðum. Vinsamlegast hafðu samband við starfsfólk okkar ef þú hefur einhverjar spurningar eða þarft frekari útskýringar.

Öryggisspurningar

Hafðu samband SÍMLEIÐIS FYRIR RANNSÓKNARDAG ef eitthvað af eftirtöldu á við um þig (520-0170):

Ígræddur hjartagangráður, bjargráður, vírar eða leiðslur.

Æðaklemma á æðagúl (aneurysma) í höfði/heila.

Ígrætt heyrnartæki (kuðungsígræðsla).

Ígræddur taugaörvi t.d. í höfði, hrygg, eða annarsstaðar.

Ígrædd lyfjadæla t.d. fyrir insúlín, baclofen eða verkjalyf.

Ígræddur hjáveituleggur (shunt) sem stilltur er með segli.

Blóðsykursmælir á húð.

Þekkt eða möguleg málmflís í auga, byssukúla eða sprengjubrot í líkamanum.

Innilokunarkennd eða getur ekki legið alveg kyrr.

Barnshafandi eða mögulega barnshafandi.

Undirbúningur

Upplýstu geislafræðing Á STAÐNUM Á RANNSÓKNARDEGI ef eitthvað af eftirtöldu á við um þig

Ígræddur málmur eftir skurðaðgerð t.d. gerviliður, plötur, skrúfur, pinnar eða vírar.

Ígræði í æðum t.d. gormur/spóla (coil), stoðnet (stent), holæðarsía (vena cava filter).

Einhver önnur ígræði til staðar en nefnd hafa verið.

Húðflúr (tattoo) eða lyfjaplástur á húð.

Fjarlægja þarf alla hluti sem innihalda málm t.d. skartgripi, lokka úr andliti og kynfærum, hárspennur, hárskraut, hárkollur, gleraugu, heyrnartæki, gervitennur, gerviútlimi, lyfjadælur og sambærilega hluti. Ef ekki er hægt að fjarlægja einhverja slíka hluti skal upplýsa geislafræðing á staðnum áður en farið er inn í rannsóknarherbergið.

Fara þarf úr öllum eigin fötum nema nærbuxum og sokkum og klæðast sérstökum fatnaði sem afhentur er. Eigin föt og aðrir persónulegir munir eru geymdir í læstum skápi í skiptiklefa. Ekki má taka neina hluti með inn í rannsóknarherbergið nema geislafræðingur gefi sérstaklega leyfi fyrir því. Fyrir rannsóknina er spurt um hæð og þyngd (eða mælt á staðnum), en mikilvægt er fyrir myndatökuna að þessi gildi séu rétt skráð.

Rannsóknin

Dæmigerð rannsókn tekur 10-40 mínútur og samanstendur af nokkrum myndaröðum sem hver um sig tekur fáar mínútur. Nauðsynlegt er að liggja alveg kyrr á meðan verið er að taka myndir.

Stundum þarf að gefa litarefni (skuggaefni) í æð við rannsóknina. Í slíkum tilvikum þarf að upplýsa geislafræðing um þekkt ofnæmi fyrir gadolinium litarefni (skuggaefni), nýrnasjúkdóm, skerta nýrnastarfsemi eða þungun.