Vaktsími myndgreiningarlækna:  520-0175.

Hágæða þjónusta

Við veitum heildstæða og skjóta myndgreiningarþjónustu á lægra einingaverði en opinberir aðilar s.s. Landspítali, HVE , HSS og HSU.

Framkvæmum flestar rannsóknir samdægurs.

Frábært aðgengi fyrir skjólstæðinga.

Drop-in þjónusta í röntgen, ómun og tölvusneiðmynd.

Veitum skyndisvör sé þess óskað í beiðni.

Vísum skjólstæðingum áfram séu tilmæli um slíkt.

Vaktsími myndgreiningarlækna:  520-0175.

Sérgreina­miðaður úrlestur

Líkt og gildir um aðra sérhæfða þjónustu byggir val lækna á myndgreiningarþjónustu á gæðum fremur en nálægð.

Hjá okkur gera ekki allir allt, heldur tryggjum við hámarks gæði með reyndum sérfræðingum sem skipta með sér verkum í sérgreinamiðuðum úrlestri.

Myndgreining taugakerfis og andlits/háls.

Myndgreining brjósthols.

Myndgreining kviðar- og grindarhols.

Myndgreining stoðkerfis.