Beiðnir

Beiðnasendingar

Læknar geta sent okkur beiðnir eftir þremur leiðum:

  1. Þeir læknar sem vinna í Sögu-kerfinu geta sent okkur beiðni rafrænt í því kerfi. Sjá leiðbeiningar hér. Athugið að þótt Sögu-kerfið sé í notkun á LSH þá er málum þar þannig háttað að lokað er á beiðna- og svarasendingar til og frá LSH um Sögu-kerfið. Því er ekki hægt að senda okkur beiðni þessa leið frá LSH.
  2. Hægt er að senda okkur beiðni rafrænt um hlekkinn beidni.rontgen.is í hvaða vafra sem er. Ekki þarf sérstakan aðgang þar sem auðkenning á sér stað með rafrænum skilríkjum. Athugið að kerfið flettir viðkomandi upp í læknaskrá þannig að aðeins læknar og tannlæknar geta sent inn beiðnir.
  3. Hægt er að fylla út pappírsbeiðni sem er aðgengileg hér. Aðrar pappírsbeiðnir, ss frá LSH eða Röntgen Dómus eru einnig fullgildar. Hægt er að mæta með beiðnina til okkar þegar mætt er í rannsókn, senda hana í bréfpósti til okkar eða faxa í 520-0171

Veljið rétta útfærslu á rannsókninni

Vinsamlega passið að setja viðeigandi upplýsingar í “sjúkrasögu” og “spurningar”. Þetta þarf ekki að vera langur texti en nauðsynlegar upplýsingar eru mikilvægar til að velja rétta útfærslu á rannsókninni, túlkun á myndrannsóknunum og svo að við getum tekið nákvæmari afstöðu til þeirra atriða, sem skipta mestu máli.

Niðurstöður

Niðurstöður eru sendar til umbeiðandi læknis í Sögukerfinu (ef við á) og eru aðgengileg í Sögukerfi  Orkuhússins, í Heilsugátt undir "ytri gögn" frá Orkuhúsinu og í vefgáttinni myndir.rontgen.is.